24desember

Merry christmas!!

Gleðileg jól allir landsmenn!!

Kv. Betri Blandan
24. desember 2006 klukkan 21:07
Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir
Engin athugasemd
08desember

þessi færsla er tileinkuð pásunum sem þið takið á lestrinum og vonið svo innilega að finna e-ð lesefni á netinu

jæja eitt próf eftir hjá mér, ég lærði eins og vitleysingur á miðvkudaginn fyrir þau tvö próf sem ég fór í í gær. ég byrjaði að, ef ég má segja, að hanna lærustíl. kannist ekki við það að liggja upp í rúmi/sitja við borð og alltaf við það að sofna??? og í flestum tilvikum sofna!

þeir dagar eru búnir hjá ykkur! tækni sem ég kýs að kalla: teach others and you shall learn! eða standandi verk ávallt fullklárað! munu breyta lífi ykkar!
aðferðin teach others and you shall learn lýsir sér þannig - þegar þú ert búin að lesa e-ð ferð þú og segir frá því sem þú hefur verið að læra, notar orðin ,,vissir þú" mjög oft, áhugasamir munu hlusta af eftirtekt og klappa þér lof í lófa þegar þú ert búin, aðrir munu... tja það er önnur saga og vil ég ekki segja hana hér en eitt skal ég segja að það er ekki létt að pikka á tölvu aðeins með vinstri!
aðferðin standandi verk ávallt fullklárað er þannig í lýsingu - finndu þér gott gólfpláss þar sem þú getur reikað um, stilltu þér upp með glósurnar/bókina, taktu þér staf/prik í hendi og hefðu lesturinn. þessa aðferð má líka kalla: work that runway. aðferðina má líka betrumbæta: þú getur látið hluti inni í því herbergi vera lærlinga þína, gert þér í hugarlund að þeir séu/eiga að vera að fylgjast með (fer eftir því hvað þú ert ströng/strangur) og þegar þú ert búin að útskýra e-ð eða segja frá þá geturu tekið t.d. blómapott á teppið og spurt hann spjörunum úr.

þessar aðferðir gerðust himnasending fyrir mig og vildi ég hafa tekið þær í verk fyrr, eða alla vega fyrir íslensku prófið! ég verð mjög fegin ef ég slepp með slefi á þeim bæ. en prófin sem ég fór í í gær, sálfræði og íþróttafræði, gengu mjög vel og hafði mér ekki gengið svona vel áður í sálfræðiprófi.


prófið og ykkur mun takast,
prófin af ykkur munu fargast,
ef þið hlust þið á mig, þið eigið munu andast.
-tolla

ég ætla að benda á að ég er búin að stofna svona undirsiðu sem heitir hornafargan betriblöndunnar, þar væri ég mjög til í að við allar munum stofna eitt horn og þið ráðið alveg um hvað þið tileinkið hornið. ég ákvað að byrja með þetta í gærkveldi og vona ég að þið gerið slíkt hið sama en auðvitað þegar þið eruð búnar í prófunum! reynum að halda þessari síðu gangandi esskur!
Glottandi

-myndir eru komnar inná blog.central.is/meistara_hk frá óvissuferðinni! endilega kíkjaHlæjandi



fallegasta lið landsins!!!
08. desember 2006 klukkan 18:44
Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir
2 athugasemdir
04desember

dises móses og jósep frá nasaret....

Maður er bara í stórhættu herna á jörðinn...þegar svona vitleysingjar eins og Elín anna eru annars vegar!!! Það er nú bara þannig að ef maður gerir ekki eins og hun segirr þá á maður von á drullukasti og karatespörkum!!!
Skúli: pólskur karlmaður um fimmtugt sem við stöllur höfum kynnst nýverið eftir mikla legu á bókasafni kópavogs...Skúli hangir á bókasafninu alla daga flokkar geisladiska í hillunum, reynir við erfiðu námsefnin (stæ303) og fylgist með fólkinu í pólsku fötunum sínum, Svört og hvít skyrta með klikkuðum munstrum, köflóttum jakkafatajakka með klútinn í jakkavasanum og jú líka hinn köflótti jakkinn sem kemur utanum...einnig jakkafatajakki, einungis einu númeri stærri, risa gönguskóm soldið rússneskur fílingur á þeim...stuttum buksum og ekki má gleyma frábæri ekta leðurtöskunni (eins konar skjalataska undir hendina samt frá árinu 1920 eða um það bil). hjann er við öllu búinn...með pennann inná jakkavasanum og klútinn í vasanum.
jæja þá yfirgaf hann svæðið einmitt á meðan ritun á þessari færlu stóð.

Við viljum endilega þakka ykkar þolinmóðu áheyrn á lýsingum okkar á nýja besta vini okkar honum skúla. Nú ætlum við að snúa okkur að mikilvægari málefnum, LifeðlisfræðinniUllandi
kveðja littlu konurnar á bókasafninu:D
(ætluðum að setja ýkt fallega mynd af okkur hérna en kunnum það ekki:D)

04. desember 2006 klukkan 20:02
Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir
1 athugasemd
27nóvember

Takk fyrir seinast/síðast!?

Takk stelpur fyrir frábært laugardagskvöld:D Þykir mjög leiðinlegt hafa ekki verið með ykkur yfir daginn því að fjörið var þvílíkt! Ég hefði bara átt að segja upp vinnuni minni!Hlæjandi Hvernig væri að fá myndirnar frá ratleiknum hérna inná??
En partýið var ýkt skemmtilegt þökk sé partý nefndinni. Þetta voru skemmtilegir leikir  mjallhvítar leikurinn tókst mjög vel en hlutverkaleikurinn var eitthvað síðri...  En Brynja hélt leiknum uppi og tók hlutverkinu alvarglega enda fékk Tinna ekki frið fyrir flirtinu hennar Brynju.. Já sumar fóru alveg á kostum þetta kvöld og gerðu það bara skemmtilegra.. Vona alla vega að við getum sett inn myndirnar fra kvöldinu og jafnvel vídeo;)
í anda hawai

Nú fara jólin að koma og prófin að byrja og þá verður örugglega ekki mikið bloggað þar sem við lokum okkur inn í herbergi og lærum alla daga...  En ég var að pæla í að við ættum að hafa hitting í jólafríinu?? kannski laugardaginn 17. desember??

En ég kveð að sinni enda hef ég nákvæmlega ekkert til að skrifa um...

Love
Elín Anna

27. nóvember 2006 klukkan 17:36
Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir
3 athugasemdir
24nóvember

gott kvöld góðir hálsar, hóstið nú fyrir mig, lítið til hægri, vinstri og signið. nú mun hefjast lestur.

hæ hvað segið þið. er ekki allt frábært! omg ég er svo happy! happy face í gangi hérna hehehehe Hlæjandi
ok flott

ég var að horfa á herra ísland og mesta krútt í heimi vann. mér fannst hann eiga það fyllilega skilið. samt þegar ég horfi á svona keppni þá fer ég alltaf að hlæja, ég ætlaði að grenja út hlátri þegar ég sá nokkra af þessum gaurum með ljós fjólubláan gloss! það sást svo mikið á þeim sem voru algjörlega súkkulaði brúnir. hehe.

mér finnst að við allar ættum að koma með eitt svona horn á síðuna, þá kemur aðeins meira líf á þessa síðu og allar eru að gera e-ð Brosandi ég var að pæla að hafa svona horn sem er hljómsveit vikunnar eða e-ð svona tónlistar tengt (vá kemur á óvart) Ullandi en segið endiega hvað ykkur finnst um þetta.

ég vil persónulega óska örnu sif pálsdóttur til hamingju með valið í a-landslið kvenna sem mætir færeyingum þessa helgi og fer til rúmeníu næstu helgi til að berjast um sæti á HM 2008. ég vil líka óska auði til hamingju með að komast í æfingarhóp a-landsliðsins. það er snilld fyrir sig að við ungu lömbin í HK eigum tvær 18 ára í þeim hópi og erum við yfirgengilega stoltar af því, Svalur en því miður þurfti hún auður okkar að lúta fyrir ágústu eddu og hörpu melsteð að þessu sinni, og eru þær ekki af verri kantinum handboltalega séð!
og vegna valsins á örnu sif þá frestast allir unglinga flokks leikir fyrir áramót, þannig engar eyjar næstu helgi vúhúúú!Glottandi þá er held ég bara málið að hafa það þvílíkt gaman þessa helgi, óvissuferð á laugardaginn og svo stuð um kvöldið! engar btw að beila á því, við ætlum að skemmta okkur all svakalega!

kolla kveður að sinni. bæ essskurnar


24. nóvember 2006 klukkan 07:15
Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir
1 athugasemd
22nóvember

Strax orðnar latar við bloggið?

Statusinn eins og er:

 Ásgerður er minnst í þessum hóp. Hún á kærasta sem heitir Guðlaugur Tryggvi. Ásgerður er aldrei kölluð gerður eða gredda, en Ása við og við. Hún bjó einu sinni í Englandi. Mætti segja að hún væri með þeim fróðari í þessum hóp. Ásgerður er í MR, og þess vegna megum við ekki tala við hana. 
Brynja Magg var einu sinni á lausu, en það var einu sinni. Akureyringur að nafni Arnór vermir hjartað hennar allhressilega. Brynja veit alltaf allt og segir frá allt og öllu. Við elskum hana í tætlur fyrir það. Orðið steik á vel við hana. Brynja finnst helst í Versló Brynja
 Ólöf Kolbrún er Pearl Jamari #1. Á tímabili var mailið hennar jammarinn, sem margir héldu að ætti að vera djammari. Hún sér um algjörlega um tónlistina og yfirleitt hressleikan. Þessi dama getur sofnað hvar sem er hvenær sem er, ég á myndir til að sanna það! Kolla er skólaflakkari og er nú í FB
Auður W er eiginlega sú sem heldur þessu öllu saman, án þess að vita af því. Hún er oftast rosalega utan við sig. Ólafur Bjarki er sá sem hún er hvað mest skotin í. Hún er líka sú sem hefur breyst eiginlega mest frá því að maður kynntist henni fyrst. Ó já, hún er líka frekja (eins og sumir). Auður er í Versló 
 Elín Anna er daninn hér. Hún sér líka um það að daðra og kann vel á karlpeninginn. Elín er sú sem tekur stóran þátt í Ávaxtakörfunni, þar söng hún sitt helsta lag "Ef spegillinn gæti talað". Hún er nú soddan söngfugl þessi. Elín gengur í MK.  
Ég heiti sjálf Arna Sif, er hæst í hópnum og er í Versló. 


Svona, ég braut ísinn :)

En ég kveð þá
Ykkar Arna Sif

p.s. stelpur ég nenni ekki að sjá neitt tuð um myndirnar, fann engar af ykkur einar nema þessar.. Ásgerður verður örugglega mest ánægð með mig.. ;)
22. nóvember 2006 klukkan 23:43
Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir
4 athugasemdir
18nóvember

öll kóngsins fífl sameinist undir eina harðsnúna regnhlíf!

ákveðinn varmi mun fikra sig um líkama ykkar er þið lesið þessi auðmjúku orð. við köllum varmann stefán. stefán er nú búin að yfirtaka líkama ykkar og það leiðir að sér þessa ómóstæðilegu tilfinningu. þær eru byrjaðar að blogga aftur. elín, kolla, áserður, auður, arna sif og brynja. þið byrjið að brosa og hugsið með ykkur allt það sem er gott og blessað. einhver sæla yfirtekur hugann og það fær ykkur ekkert stöðvað. þið fáið aftur vonina, sæluna, hamingjuna og vitið aftur.

18. nóvember 2006 klukkan 23:31
Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir
4 athugasemdir

Aðalvalmynd

niðurtalning hefst...

Auglýsing

hornafargan betriblöndunnar

Frábærar síður

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Innskráningar kubbur

Gagnasafn

Leikur dagsins